Jörðin Ytri Bægisá er staðsett við hringveginn 23 km vestan við Akureyri, þar sem Öxnadalurinn og Hörgárdalurinn mætast. Háu fjöllin Tröllaskagans setja sterkan svip á landslagið og náttúrufegurð er mikil.
Litla gistihúsið okkar er notalegur staður fyrir alla sem vilja komast í snertingu við sveitalífið og dýrin, slappa af í fallegu, rólegu umhverfi, en hafa jafnframt góðan aðgang að margs konar afþreyingu. Ytri Bægisá er einstaklega vel staðsett til skoðunar- og gönguferða um Tröllaskagann.
Við hlökkum til að fá ykkur í heimsókn!
Stefán og Elisabeth