Óveður á aðventunni
Versta veður var á norðurlandi öllu í rúman sólarhring. Umferðin lamaðist og skólinn féll niður. En sumir voru alls ekki hryggir yfir þvi…..
Versta veður var á norðurlandi öllu í rúman sólarhring. Umferðin lamaðist og skólinn féll niður. En sumir voru alls ekki hryggir yfir þvi…..
Í haust fengum við sjaldséða heimsókn: Silkitoppa settist á girðinguna okkar. Hún er einstaklega falleg með gula beltið sitt á stelinu. Astrid náði þessum myndum af henni . Og svo var auðvitað rúningurinn á verkefnaskrá. Ófeigur var eins og vanalega einstaklega þægur og fékk sér göngutúr út á hlað í fylgd Loga og Bensa að [...]
Í fyrsta sinn gengu Bægisákindurnar á fjall í Hörgárdal. Fyrstu göngurnar fóru fram 10. og 11. september. Þann 12. september var síðan réttað í Staðarbakkarétt. Á myndinni sjást m.a.Guðmundur Skúlason bóndi á Staðbakka og Stefán Lárus Karlsson bóndi á Ytri Bægisá. Réttarstörfin gengu vel.
!9.september voru teknar upp kartöflurnar og uppskeran er mjög fín í ár.
Síðastliðnu dagana var töluverð SO2 mengun sem barst alla leið frá Holuhrauni. Dalurinnn og fjöllin lágu undir blágrárri móðu. Ófegi, Kolu og Tobba var samt tiltölulega sama um það.
Aðfaranótt 4. júlí snjóaði niður fjallshlíðarnar. Og enn er töluvert eftir af snjónum frá því í vetur.
Þó okkur þyki vænt um alls konar dýr, þá á það ekki við um geitungana sem fluttu inn í gróðurhúsið okkar í júní. Stefán bóndi tók að sér að biðja þá vinsamlegast að fara annað….
Alltaf gaman að leika sér að tölum!! Gamlar tölur, nýjar tölur, hvítar og litaðar….
Útlínur hvannarinnar eru þæfðar með, en til að skýra myndina er saumað ofan í blómið með útsaumssporum
Hún lítur út fyrir að vera einföld,en er töluverð flókin í framkvæmd! Fyrst þarf að byrja á því að lykkja hvíta og svarta hluta handfangsins saman, síðan tengja það töskunni sjálfri sem er að hluta til úr hvítri og svartri ull.