Jólatré úr rekaviði

Fyrir jól var smíðað jólatré úr rekaviði , hvíttað með panellakki og svo voru settar 25 litlir krókar í, svo það geti  t.d.nýst sem aðventudagatal.

By |2014-02-02T20:07:16+00:00febrúar 2nd, 2014|Heimaframleiðsla|Slökkt á athugasemdum við Jólatré úr rekaviði

Alls konar skór

Barnaskór með skemmtilegum doppum (litað latex) undir sólunum, svo að eigendurnir renna ekki til og detta. Gráir inniskór með haustmunstri úr ull og fiskiroð.

By |2014-02-02T20:05:33+00:00febrúar 2nd, 2014|Heimaframleiðsla|Slökkt á athugasemdum við Alls konar skór

Endurvinnsluhestur

Loksins eftir langa hönnunnarmeðgöngu leit “Faxi” dagsins ljós. …og til þess að hann verði ekki allt of einmanna fékk hann strax tvo bræður!

By |2013-04-28T19:20:12+00:00apríl 28th, 2013|Heimaframleiðsla|Slökkt á athugasemdum við Endurvinnsluhestur

Heklaðir snjókristallar

Jólin 2013 mega koma! Loksins urðu þeir að veruleika: hekluðu snjókristallarnir, sem eru ótrúlega fallegir. Ekki beint auðvelt að byrja á þeim, en þegar maður er komin af stað verður það fljótt ávanabindandi!!

By |2013-03-09T16:00:52+00:00mars 9th, 2013|Heimaframleiðsla|Slökkt á athugasemdum við Heklaðir snjókristallar

Kind-Ull- Band- Peysa- Kind: Endurvinnslukindur

  Þessar kindur eru saumaðar úr gömlum lopapeysum og öðrum  notuðum fatnaði. Búkur og haus eru tvöfaldir: lopapeysa að utan , bómullarbolur að innan, og kindurnar fylltar með 100% polyester. Engin er eins.

By |2012-05-28T09:06:16+00:00maí 28th, 2012|Heimaframleiðsla|Slökkt á athugasemdum við Kind-Ull- Band- Peysa- Kind: Endurvinnslukindur

Hjörtu úr hvítri ull

Þessi hjörtu eru þæfð úr hvítri ull, kjarnin er úr svampi. Síðan eru blöð og blóm saumuð í eftir á. Engin tvö eru alveg eins.  

By |2012-04-15T14:39:59+00:00apríl 15th, 2012|Heimaframleiðsla|Slökkt á athugasemdum við Hjörtu úr hvítri ull

Innbundnar bækur

  Skemmtilgar línustrikaðar bækur með áfastri ullarkápu. Örþunnt efni/mynd er handþæft , þurrkað og síðan límt utan á stílabók.

By |2012-04-07T15:44:10+00:00apríl 7th, 2012|Heimaframleiðsla|Slökkt á athugasemdum við Innbundnar bækur

Gráflekka-flottasta ærin á bænum

Það má nýta gamlar lopapeysur í ýmislegt. Þessi kind leit dagsins ljós síðl. helgi. Búkurinn er í tveimur lögum ( stuttermabolur að innanverðu, lopapeysa að utanverðu). Haus og fætur eru úr vélprjónuðu efni. Kindin er fyllt með polyesterfillingu. Augun eru tvær stórar tölur. Allt efnið í kindinni eru endurnýtt föt úr nytjamörkuðum t.d. hjálpræðishernum.

By |2012-04-07T15:35:33+00:00apríl 7th, 2012|Heimaframleiðsla|Slökkt á athugasemdum við Gráflekka-flottasta ærin á bænum

Fleiri töskur

Tvær mismunandi gerðir af hliðartöskum.   Stór innkaupataska úr svartri ull með hvítum lokkum.

By |2012-04-07T15:16:05+00:00apríl 7th, 2012|Heimaframleiðsla|Slökkt á athugasemdum við Fleiri töskur
Go to Top