Handverk og heimaframleiðslaadmin2018-05-21T23:07:40+00:00
Ýmis falleg gjafavara og nytjamunir eru framleiddir hér á Ytri Bægisá2. Nýting hráefna sem búreksturinn eða náttúran og nærumhverfið gefa af sér er höfð að leiðarljósi í því sambandi. Í sérstöku uppáhaldi er ullin af okkar fé, sem er notuð til að þæfa inniskó, töskur, sessur, hítaplattar og skrautmuni. Svo eru sápurnar heimagerðar úr tolgi og jurtum. Sulturnar eru heimatilbúnar og er það mjög heppilegt að gott berjaland er alls ekki langt undan.
Einnig er gömlum fötum gefið framhaldslíf með því að sauma úr þeim tuskudýr.
Öll okkar heimaframleiðsla er merkt. Hugsanlega velta einhverjir fyrir sér hvernig merkið er tilkomið og hvað það táknar. Hér kemur því smá skýring: Frá því að land byggðist hefur tíðkast að skera í eyru nýfæddra lamba til að merkja þau. Ákveðið fjármark einkennir fé hvers bónda og þannig þekkir hann sínar kindur frá öðrum þegar réttað er á haustin. Fjármörk hafa í mörgum tilvikum verið lengi í sömu ætt og eru varðveitt sem ættargripur. Á Ytri Bægisá 2 hefur frá upphafi verið búið með sauðfé og fjármarkið okkar er „vaglrifa að framan, bíti að aftan“ á hægra eyra og „alheilt“ vinstra eyrað. Þannig var ákveðið að hafa þetta sem einkennismerki, ekki bara sauðfjárins, heldur næstum alls á bænum.