Þann 15. apríl var mætt grágæs fyrir framan húsið okkar og var mjög forvitin og alveg til í að fá brauðbita frá Bensa.
Henni var líka alveg sama um Kolu, sem var hálfundrandi yfir þessum gesti.
Gæsin hefur síðan haldið til hjá okkur og þessar myndir voru teknar sunnudaginn 19. apríl, þegar hún fylgdist með okkur í góða veðrinu sunnan við hús.