About admin

This author has not yet filled in any details.
So far admin has created 136 blog entries.

Fæðingartilkynning

Þann 16.júni seint um kvöldið bar Snædís okkar yndislegri kvígu, sem er algjör eftirmynd mömmu sinnar. Burðurinn gekk hratt og vel , en Frú Pandora var Snædísi til halds og traust. Fyrsti sopinn er alltaf góður. Þar sem nóttin var ekki allt of hlý fyrir hana litlu voru þær mæðgur fluttar inn, til að jafna [...]

By |2014-07-06T10:03:18+00:00júlí 6th, 2014|Uncategorized @is|Slökkt á athugasemdum við Fæðingartilkynning

1. maí- dagur verkalýðsins

Fyrstu lömbin fæddust þann fyrsta maí. Það eru nettir fyrirburar. Eftir smá aðstoð með fyrstu sopana fóru Pálmi og Lára að braggast.   Og þann fyrsta maí byrjaði líka fyrsta blómið í garðinum að blómstra.

By |2014-05-02T20:06:42+00:00maí 2nd, 2014|Uncategorized @is|Slökkt á athugasemdum við 1. maí- dagur verkalýðsins

Það er komið sumar

Gleðilegt sumar! Beggi og Bensi skemmta sér í tilefni dagsins í algjöri afneitun hvað varðar hitastigið. Frú Pandóra og Snædís fá að spóka sig úti og voru það fleiri sem langaði út…..

By |2014-05-02T20:04:01+00:00maí 2nd, 2014|Uncategorized @is|Slökkt á athugasemdum við Það er komið sumar

Versta vetraveðrið í langan tíma

Eftir tæplega þrjá sólahringa gekk veðrið loksins niður. Skólahaldið í Þelamerkurskóla hefur legið niðri 20.3. og 21.3. og Öxnadalsheiðin hefur verið lokuð frá því um kvöldið 19.3. Það þarf að fara mörg ár aftur í tímann til að finna sambærilega ófærð. Svona var umhorfs laugardagsmorgun 22.3.2014- mannhæðaháir skaflar í kring um húsið.Ekki sást út um [...]

By |2014-03-22T11:03:15+00:00mars 22nd, 2014|Uncategorized @is|Slökkt á athugasemdum við Versta vetraveðrið í langan tíma

Vorið að koma?

Á meðan það er ekki sérlega vorlegt um að litast úti…… ……..þá dafnar Prins Igor mjög vel…… ………og kindurnar fá sína vorklippingu. ‘ Ófeigur er eins og vanalega alveg til fyrirmyndar og fær að rúningi loknum bjölluna sína aftur frá Bensa.

By |2014-03-09T19:54:14+00:00mars 9th, 2014|Uncategorized @is|Slökkt á athugasemdum við Vorið að koma?

Löng fæðing

Þann 7. febrúar átti Panda að eiga kálfinn sinn, en allt sem gerðist þann dag var að nafnið var valið. Kálfurinn sjálfur lét hinsvegar ekki sjá sig. Hugmyndin að nafninu kviknaði í setningarathöfn vetrarólympíuleikanna. Oft mátti heyra stef úr óperunni “Prins Igor” eftir Aleksander Borodin . Og “Prins Igor” er nú bara býsna fallegt kálfanafn. [...]

By |2014-02-15T14:45:30+00:00febrúar 15th, 2014|Uncategorized @is|Slökkt á athugasemdum við Löng fæðing

Jólatré úr rekaviði

Fyrir jól var smíðað jólatré úr rekaviði , hvíttað með panellakki og svo voru settar 25 litlir krókar í, svo það geti  t.d.nýst sem aðventudagatal.

By |2014-02-02T20:07:16+00:00febrúar 2nd, 2014|Heimaframleiðsla|Slökkt á athugasemdum við Jólatré úr rekaviði

Alls konar skór

Barnaskór með skemmtilegum doppum (litað latex) undir sólunum, svo að eigendurnir renna ekki til og detta. Gráir inniskór með haustmunstri úr ull og fiskiroð.

By |2014-02-02T20:05:33+00:00febrúar 2nd, 2014|Heimaframleiðsla|Slökkt á athugasemdum við Alls konar skór
Go to Top