400 gr. hveiti
100 gr. heilhveiti
200 gr. rúgmjöl
2 tsk. salt
150 gr. hörfræ (vera búinn að hella sjóðandi vatn yfir þau, láta standa í
klukkutíma , hella siðan í sigti og láta renna af þeim )
4 tsk. þurrger
ca. 350 ml. volgt vatn
Hnoða öllu saman í hrærivél og láta deigið hefast , þar til búið er að stækka greinilega. Hnoða siðan aftur í höndunum og mota 2 hringlótta hleifar, setja þá á bökunarplötu og láta þá hefast aftur.
Forhíta ofninn á 180° og baka í ca. 45 mín.