Þann 12.maí átti Snædís litla rauða kvígu. Hún fæddist úti í sól og blíðu án þess að nokkur vissi.
Þegar að var komið lá Frú Bleik hjá henni og Snædís fylgdist með. Litla hlaut nafnið Sóldís.
Það var síðan hægara sagt en gert að koma þeim þremur inn. Sóldís þurfti töluverða “hvatningu” frá Bensa, en það hafðist fyrir rest.