About admin

This author has not yet filled in any details.
So far admin has created 136 blog entries.

Endurvinnsluhestur

Loksins eftir langa hönnunnarmeðgöngu leit “Faxi” dagsins ljós. …og til þess að hann verði ekki allt of einmanna fékk hann strax tvo bræður!

By |2013-04-28T19:20:12+00:00apríl 28th, 2013|Heimaframleiðsla|Slökkt á athugasemdum við Endurvinnsluhestur

Bændur af Vatnsnesi í heimsókn

Laugardaginn 16.3. 2013 kom hópur bænda úr Húnavatnssýslu til okkar að skoða fjárhúsin. Stefán synir hér gjafagrindurnar. Eftir að hafa litast um var öllum boðið inn í kaffi. Handverkskona úr hópnum gaf okkur þennan fallega púða. Takk fyrir okkur!

By |2013-03-19T18:37:19+00:00mars 19th, 2013|Uncategorized @is|Slökkt á athugasemdum við Bændur af Vatnsnesi í heimsókn

Heklaðir snjókristallar

Jólin 2013 mega koma! Loksins urðu þeir að veruleika: hekluðu snjókristallarnir, sem eru ótrúlega fallegir. Ekki beint auðvelt að byrja á þeim, en þegar maður er komin af stað verður það fljótt ávanabindandi!!

By |2013-03-09T16:00:52+00:00mars 9th, 2013|Heimaframleiðsla|Slökkt á athugasemdum við Heklaðir snjókristallar

Vorverkin að byrja á bænum

Þessa dagana er verið að snoða á Ytri Bægisá. Það er nú ekki mikið ullarmagn á hverri kind, en margt smátt gerir eitt stórt. Að sjálfsögðu þarf að snoða hann Ófeig líka og hann Logi Ingólfsson fylgist með. Ófeigur var eins og venjulega einstaklega þægur og fékk köggla í verðlaun og Bensi setti bjölluna hans [...]

By |2013-03-09T15:42:55+00:00mars 9th, 2013|Uncategorized @is|Slökkt á athugasemdum við Vorverkin að byrja á bænum

Andlitslyfting fyrir vinnukofann hennar Betu

Rétt eftir jól fékkst þessi glæsilega eldhúsinnrétting úr Rauðumýrinni á Akureyri. (Takk Inga Vala!!) Núna er mikið pláss fyrir allt milli himins og jarðar og sköpunargleðin  getur farið á flug.   ….alla vega nóg af ull  til að vinna með….

By |2013-01-29T20:07:34+00:00janúar 29th, 2013|Uncategorized @is|Slökkt á athugasemdum við Andlitslyfting fyrir vinnukofann hennar Betu

Það haustar í sveitinni

Féið er að mestu leyti komið heim. Stefán og Hermann frændi eru að reka inn til að vigta og sortera. Kálfarnir njóta veðurblíðunnar .   Í miðhálsstaðaskógi ríkir einstök litadýrð um þessar mundir. Horft heim í Bægisá. Séð suður í Öxnadalinn. Bægisárdalurinn – séð að handan

By |2012-09-30T14:25:33+00:00september 30th, 2012|Uncategorized @is|Slökkt á athugasemdum við Það haustar í sveitinni

Snjór í september

Fyrsti snjórinn alla leið niður í byggð kom þann 10.september í ár. Veturinn er  allt of snemma á ferðinni þetta árið. Einmitt þegar uppskerutíminn er kominn í grænmetisgarðinum. En bót í máli er að göngurnar sem eru framundan verða trúlega léttari, því flestar kindurnar  koma niður af sjálfsdáðum við þessar aðstæður.

By |2012-09-10T13:11:01+00:00september 10th, 2012|Uncategorized @is|Slökkt á athugasemdum við Snjór í september

Sleppt upp á fjall í miðjum júní

Snædís og Frú Bleik  kveðja lömbin og ærnar. Sjáumst í haust!   Gömlu fjárhúsin í Hrauni. Nú er engum til setunnar boðið. Hver vill vera fyrstur á fjall! Astrid ,Stefán og Bensi passa upp á að réttu lömbin fara með mömmu sinni.

By |2012-07-04T11:44:43+00:00júlí 4th, 2012|Uncategorized @is|Slökkt á athugasemdum við Sleppt upp á fjall í miðjum júní

Tobbi orðinn pabbi!!!!!

Þann 23.maí 2012 eignaðist nágrannatíkin Píla 6 hvolpa……eftir óplanaðri þungun. Tobbi þó!! Mikið eru þeir sætir!!!!

By |2012-05-28T10:06:09+00:00maí 28th, 2012|Uncategorized @is|Slökkt á athugasemdum við Tobbi orðinn pabbi!!!!!

Veturinn ekki alveg búinn

Miðjan maí kom eitt kröftugt vertarskot. Jörðin var alhvít og mátti hýsa allt féð. Sem betur fer gekk þetta yfir á tveimur sólarhringum.

By |2012-05-28T09:59:42+00:00maí 28th, 2012|Uncategorized @is|Slökkt á athugasemdum við Veturinn ekki alveg búinn
Go to Top