Snjór í september

Fyrsti snjórinn alla leið niður í byggð kom þann 10.september í ár. Veturinn er  allt of snemma á ferðinni þetta árið. Einmitt þegar uppskerutíminn er kominn í grænmetisgarðinum. En bót í máli er að göngurnar sem eru framundan verða trúlega léttari, því flestar kindurnar  koma niður af sjálfsdáðum við þessar aðstæður.

By |2012-09-10T13:11:01+00:00september 10th, 2012|Uncategorized @is|Slökkt á athugasemdum við Snjór í september

Sleppt upp á fjall í miðjum júní

Snædís og Frú Bleik  kveðja lömbin og ærnar. Sjáumst í haust!   Gömlu fjárhúsin í Hrauni. Nú er engum til setunnar boðið. Hver vill vera fyrstur á fjall! Astrid ,Stefán og Bensi passa upp á að réttu lömbin fara með mömmu sinni.

By |2012-07-04T11:44:43+00:00júlí 4th, 2012|Uncategorized @is|Slökkt á athugasemdum við Sleppt upp á fjall í miðjum júní

Tobbi orðinn pabbi!!!!!

Þann 23.maí 2012 eignaðist nágrannatíkin Píla 6 hvolpa……eftir óplanaðri þungun. Tobbi þó!! Mikið eru þeir sætir!!!!

By |2012-05-28T10:06:09+00:00maí 28th, 2012|Uncategorized @is|Slökkt á athugasemdum við Tobbi orðinn pabbi!!!!!

Veturinn ekki alveg búinn

Miðjan maí kom eitt kröftugt vertarskot. Jörðin var alhvít og mátti hýsa allt féð. Sem betur fer gekk þetta yfir á tveimur sólarhringum.

By |2012-05-28T09:59:42+00:00maí 28th, 2012|Uncategorized @is|Slökkt á athugasemdum við Veturinn ekki alveg búinn

Svipmyndir úr sauðburðinum

Tveir sauðburðavaktmenn orðnir svefninum að bráð. Sum þurfa “gjörgæslu” og aukapela. Afi Kalli að líta á einn flottan: alhvítur með eitt svart eyra.

By |2012-05-28T09:11:50+00:00maí 28th, 2012|Uncategorized @is|Slökkt á athugasemdum við Svipmyndir úr sauðburðinum

Lambakóngur fæddur

Er maður ekki sætur???!!!! Í dag 24.4. 2012 fæddist lambakóngurinn á bænum. Hann kom reyndar 10 dögum fyrir tímann, en hann braggast vel og hann hlaut nafnið Tumi þumall.   Mamman er afar stolt og glöð með litla hrútinn sinn.   Og hver er nú sökudólgurinn????

By |2012-04-24T19:47:41+00:00apríl 24th, 2012|Uncategorized @is|Slökkt á athugasemdum við Lambakóngur fæddur

Gleðilegt sumar!

Sumardagurinn Fyrsti 19. apríl 2012: Vetur og sumar frusu saman svo að það má búast við góðu og sólríku sumri-allavega lofaði fyrsti dagurinn góðu! Bensi og Astrid leggja af stað í þann langþráða fyrsta reiðtúr ársins  Frú Bleik og Snædís fóru í labbitúr til að heilsa upp á sumarið.

By |2012-04-19T18:04:20+00:00apríl 19th, 2012|Uncategorized @is|Slökkt á athugasemdum við Gleðilegt sumar!

“Vörutalning” á Bægisá

Sunnudaginn 25.3. 2012 fór fram fósturtalning hjá okkur. Að venju sá Gunnar frá Sandfellshaga um talninguna. Útlitið er gott fyrir vorið í ár. Einungis fjórar ær voru lamblausar. Álíka margar töldust með eitt og með þrjú.   Ingólfur Samúelsson, Stefán bóndi, Pálmi Lárusson og Gestur Hauksson. Guðmundur Skúlason stendur í garðanum.

By |2012-04-15T14:38:23+00:00apríl 15th, 2012|Uncategorized @is|Slökkt á athugasemdum við “Vörutalning” á Bægisá

Gleðilegt nýtt ár 2012

Nýársheimsókn hjá hrossunum, sem eru á beit í Garðshornshólfinu. Það var farið út eftir á skíðum , en svo  máttu Astrid og Beggi til með að fara aðeins á bak .                                                  …og auðvitað kom Tobbi líka með okkur…              Beggi og Tryggur gamli                                                                            Moldi og Astrid

By |2012-01-01T16:10:07+00:00janúar 1st, 2012|Uncategorized @is|Slökkt á athugasemdum við Gleðilegt nýtt ár 2012

Aðventukransagerð á Bægisá

Föstudaginn 25.11. fór fram hin árlega aðventukransagerð á Bægisá. Á myndinni hér fyrir ofan eru Susanne og Cosima á fullu að klára kransanna sína. Glæsilegur afrakstur!!!

By |2011-12-02T20:00:43+00:00desember 2nd, 2011|Uncategorized @is|Slökkt á athugasemdum við Aðventukransagerð á Bægisá
Go to Top