150 gr lint smjör,
1 dl sykur og
1 1/2 dl púðursykur þeytt vel í skál ( með eldhúsvél eða handþeytara)
Síðan bætt út í:
1 egg
1 tsk. vanilludropar
200 gr hveiti
1/2 tsk. natron
1/2 tsk. salt
10 gr gróft brytjað súkkulaði
Setja eina teskeið af deigi í einu á bökunarplötu. Nokkrum Smarties( eða M&M )þrýst ofan á hverja köku.(Þetta virkar betur en að blanda Smarties ofan í deigið- því að þá lenda þær alveg eins í miðri köku eða á botninum- en að mínu mati eiga þær að sjást á yfirborðinu)
Kökurnar bakaðar við 180°C þar til þær verða fallega brúnar(80-10 mín.)
ATH: hafa gott bil á milli !! Kökurnar renna mikið við bakstur!!
Þær verða alveg stökkar, þegar þær kólna og geymast vel í lokuðum bauk.
…….og ef maður hefur gleymt að kaupa Smarties, þá bakar maður smartieslausar Smartieskökur, sem eru alls ekki síðri!!!!!!!