125 gr lint smjör,
100 gr sykur og
1/2 tsk. vanilludropar eða vanillusykur þeytt saman í skál (með eldhúsvél eða handþeytara)
Síðan bætt út í:
1 egg
100 gr gróf hakkaðar heslihnetur
150 gr gróft haframjöl
50 gr hveiti og
1 tsk. lyftiduft
Ein teskeið af deigi sett á ofnskúffu í einu og þrýst með skeiðinni ofan á.
Kökurnar bakast við 210°C í 10-13 mín. Þær verða alveg stökkar þegar þær kólna. Geymast vel í vel lokuðum bauk.
En líklegast reynir ekki á það atriði……þær eru bara einfaldlega svo góðar og klárast á stundinni!