150 gr kalt smjör
80 gr. flórsykur
1 egg
210 gr. hveiti
80 gr. fínmalaðar möndlur
Öllu hnoðað hratt saman. Alls ekki bæta hveiti við, ef deigið er klístrað, frekar geyma það svolitla stund í kæli.
Siðan eru úr deiginu mótaðar jafnar kökur – stuttar lengjur á þykkt við litla fingur og sveigðar sem hálfmánar.
Bakaðar við 170°C í 10-15 mín. Kökurnar þarf að velta strax heitar upp úr vanillusykri.( ef “vanillusykurinn” er flórsykur, er betra að blanda
hann til helmingar við venjulegan sykur)