200 gr sigtimjöl
200 gr heilhveiti
5 tsk. þurrger
3 tsk. salt
ca. 700 ml volgt vatn
Þetta er grunnuppskrift af einföldu brauði sem má útfæra á ýmsan hátt. Það má t.d. bæta út í
– 100 gr fimmkornablanda eða
– 1-2 msk. kúmen eða
– 1 msk. maltextrakt og 200 gr sólblómafræ eða
– 1 msk. maltextrakt , 4 msk. birkifræ og 2 stórar rifnar gulrætur eða
– 200 gr gróft músli og etv. nokkrar aukarúsinur
Hnoða deigið og láta hefast á hlýjum stað. Hnoða deigið siðan aftur. Mota tvo aflanga hleifa og leggja á ofnskúffu. Pensla hleifanna með vatni, skera jafnvel rákir í þá og /eða strá hveiti, fræjum yfir. Láta hleifanna aðeins hefast aftur og setja þá svo í forhitaðan ofn við 250°C. Áður ofninum er lokað er hellt einni ausu af vatni í hann. Þá myndast skyndilega mikil gufa og ofninum er lokað eins hratt og hægt er. Þannig bakast brauðið í 5 mínútur og þá er hitinn lækaður í 200° C og brauðið bakað til enda (uþb. 40 mín.- eftir því hvort óskar er eftir mjög stökkri skorpu eða síður).