250 gr smjör
250 gr sykur
6 egg
125 gr brætt súkkulaði
1 staup romm
125 gr súkkulaðispænir
250 gr fínmalaðar möndlur
100 gr hveiti
Hrærið vel saman smjöri og sykri, bætið síðan eggjunum út í einu í einu og loks bræddu súkkulaðinu.
Að lokum er romminu og þurrefnunum bætt saman við. Deigið smurt á smurða ofnskúffu og bakað í
20-30 min.við 150°C. Síðan er sett glasúr yfir ( 250 gr. flórsykur, 25 gr. kakó, 1 egg, 4 msk. heitt vatn, 50 gr.
kókosfeiti brætt ) og látið þorna yfir nóttina.
Daginn eftir eru skornir litlir bitar.Það er gott að dýfa hnífnum reglulega í sjóðandi vatn.