CIMG0274

400 gr rúgmjöl

400 gr hveiti

100 gr sykur

4 tsk. þurrger

1 tsk kanil og 3 tsk brúnkökukrydd

u.þ.b. 500 ml volgt kaffi

Hnoða úr þessu mjúkt gerdeig í eldhúsvél og láta hefast.

Á meðan skera smátt: 300 gr sveskjur

                                             150 gr apríkósur

                                             150 gr fíkjur

Taka til aukalega 100 gr heilar heslihnetur og 200 gr rúsínur.

Þegar deigið er búið að lyfta sér vel, moka því á eldhúsbekkinn og hnoða ávextina og hneturnar saman við deigið.

Móta 3 hleifa úr deiginu og leggja þá á bökunarplötu. Láta þá hefast svolitla stund.

Baka síðan í 50-60 mín. við 200° C.

Þegar bökunartíminn er rúmlega hálfnaður, taka brauðin  stutt út og pensla hleifana með kartöflumjölsglasúr og klára síðan baksturinn.  Þannig fá brauðin flottan gljáa.

(Kartöflumjölsglasúrinn er þannig búinn til: 50 gr af kartöflumjöli er létt brúnað á þurri pönnu,síðan er hellt 375ml af vatni út í,hrært vel og  þetta látið sjóða í örstutta stund. Það myndast auðveldlega kekkir!! Þess vegna er öllu hellt í gegnum sigti og tilbúni glasúrinn sykraður létt eftir smekk. Þennan glasúr má geyma í krukku í ísskápnum. Sniðugt að eiga hann til á aðventunni- hentar vel við allskyns hunangskökubakstur.

Bragðast best með smjöri.